mið 07. nóvember 2018 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sara Björk frá næstu vikurnar vegna meiðsla
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Landsliðsfyrirliðinn Sara Björk Gunnarsddóttir verður frá næstu 4-6 vikurnar vegna meiðsla.

Frá þessu er greint á heimasíðu Wolfsburg.

Sara er í lykilhlutverki hjá Wolfsburg sem er besta lið Þýskalands og eitt besta lið heims. Hún hefur misst af síðustu tveimur leikjum Wolfsburg og nú er ljóst að hún mun ekki spila fyrr en í fyrsta lagi í desember.

Wolfsburg er á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar með fullt hús stiga og þá er liðið einnig komið í 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar. Það verður ekki leikið næst í Meistaradeildinni fyrr en á næsta ári og því missir Sara ekki af næstu leikjum í Meistaradeildinni.

Wolfsburg er ríkjandi deildar- og bikarmeistari í Þýskalandi en liðið tapaði í úrslitum Meistaradeildarinnar á síðustu leiktíð, gegn Lyon.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner