Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fim 07. nóvember 2019 11:30
Magnús Már Einarsson
Erling Braut Haaland vill spreyta sig í ensku úrvalsdeildinni
Erling Braut Haaland
Erling Braut Haaland
Mynd: Getty Images
Erling Braut Haaland, framherji Red Bull Salzburg, er á óskalista stærstu félaga Evrópu eftir sjö mörk í fjórum leikjum í Meistaradeildinni á þessu tímabili.

Hinn 19 ára gamli Erling Braut er sonur Alf-Inge Haaland sem spilaði með Manchester City, Leeds og Nottingham Forest á sínum tíma.

Alf-Inge segir að sonurinn vilji spreyta sig í ensku úrvalsdeildinni í framtíðinni en hann hefur meðal annars verið orðaður við Manchester United.

„Á einum tímapunki vill hann spila í ensku úrvalsdeildinni en hvenær það gerist veit ég ekki. Þetta er mjög erfið deild," sagði Alf-Inge.

„Hann er kominn lengra á þessum tímapunkti en við bjuggumst við. Hann er byggður fyrir ensku úrvalsdeildina en hvort þetta gerist núna eða síðar veit ég ekki. Hann er hjá Salzburg, stórkostlegu félagi sem spilar í Meistaradeildinni, svo það liggur ekkert á."
Athugasemdir
banner
banner
banner