Theodór Elmar Bjarnason hefur loksins fengið sitt fyrsta landsliðsmark skráð á sig.
Elmar skoraði í 2-0 sigri Íslands á Tyrklandi 9. október 2016, í undankeppni HM.
Skot Elmars fór af Ömer Toprak, varnarmanni Tyrkja, og í netið. UEFA ákvað þá að skrá markið sem sjálfsmark.
Elmar skoraði í 2-0 sigri Íslands á Tyrklandi 9. október 2016, í undankeppni HM.
Skot Elmars fór af Ömer Toprak, varnarmanni Tyrkja, og í netið. UEFA ákvað þá að skrá markið sem sjálfsmark.
Þetta hefur hins vegar breyst, en FIFA hefur nú skráð markið á Theodór Elmar Bjarnason.
Í samræmi við það hafa UEFA og KSÍ í kjölfarið breytt sinni skráningu.
„Þeir eru að láta dreyma sig um að skrá þetta sjálfsmark. Ég veit ekki hvaða rugl það er, hann var á leið beint upp í skeytin," sagði Elmar sjálfur léttur í bragði í viðtali eftir leikinn á sínum tíma.
Smelltu hér til að sjá markið
Athugasemdir