Borgarráð Reykjavíkur hefur falið Umhverfis- og Skipulagssviði borgarinnar að hefja formlega deiliskipulagsvinnu vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar á íþróttasvæði KR við Frostaskjól.
Reykjavíkurborg mun kosta vinnu við gerð deiliskipulagsins, sem unnið verður í samvinnu við íþróttafélag KR, sem síðan verður hluti af uppbyggingarkostnaði þegar þar að kemur.
Gert er ráð fyrir mikilli uppbyggingu á svæðinu og er ljóst að vanda þarf vel til verka við deiliskipulagið en hugmyndir eru uppi um að tvinna íbúðir, verslun og þjónustu saman við fyrirhuguð íþróttamannvirki.
Sjá einnig:
Fjallað um fyrirhugaða uppbyggingu KR
Athugasemdir