Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 07. desember 2018 05:55
Brynjar Ingi Erluson
England um helgina - Englandsmeistararnir fara á Stamford Bridge
Chelsea fær Manchester City í heimsókn
Chelsea fær Manchester City í heimsókn
Mynd: Getty Images
16. umferð ensku úrvalsdeildarinnar fer fram um helgina en stærsta viðureignin fer fram á Stamford Bridge er Manchester City heimsækir Chelsea.

Fyrsti leikurinn er á morgun í hádeginu er Bournemouth fær sjóðheita leikmenn Liverpool í heimsókn. Liverpool bætti félagsmet gegn Burnley en liðið er búið að vinna tólf af fyrstu fimmtán leikjum sínum.

Unai Emery undirbýr þá Arsenal-menn fyrir Huddersfield en liðið gerði 2-2 jafntefli við Manchester United í vikunni og hefur byrjað tímabilið afar vel.

Jóhann Berg Guðmundsson verður væntanlega í eldlínunni er Burnley mætir Brighton og þá er fyrsta verkefni Ralph Hassenhuttl að stöðva Aron Einar Gunnarsson og hans menn í Cardiff City.

Pep Guardiola og lærisveinar hans í Manchester City fá verðugt verkefni gegn Chelsea. Liðið rétt vann Watford 2-1 á dögunum en liðið er á toppnum með 41 stig.

Everton spilar gegn Watford á mánudagskvöld en Gylfi Þór Sigurðsson hefur verið frábær á tímabilinu með þeim bláklæddu.

Leikir helgarinnar:

Laugardagur:
12:30 Bournemouth - Liverpool
15:00 Arsenal - Huddersfield
15:00 Burnley - Brighton
15:00 Cardiff City - Southampton
15:00 Manchester United - Fulham
15:00 West Ham - Crystal Palace
17:30 Chelsea - Manchester City
19:45 Leicester City - Tottenham Hotspur

Sunnudagur:
16:00 Newcastle United - Wolves

Mánudagur:
20:00 Everton - Watford
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 33 23 5 5 77 26 +51 74
2 Liverpool 33 22 8 3 75 32 +43 74
3 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Newcastle 32 15 5 12 69 52 +17 50
7 Man Utd 32 15 5 12 47 48 -1 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 31 13 8 10 61 52 +9 47
10 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
11 Wolves 33 12 7 14 46 53 -7 43
12 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
13 Bournemouth 33 11 9 13 48 60 -12 42
14 Crystal Palace 33 9 9 15 42 56 -14 36
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 33 10 8 15 34 48 -14 30
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 33 3 7 23 31 88 -57 16
Athugasemdir
banner
banner