Arsenal hefur staðfest að Rob Holding verði frá keppni út tímabilið vegna meiðsla.
Holding sleit krossband í 2-2 jafnteflinu gegn Manchester United í vikunni.
Holding sleit krossband í 2-2 jafnteflinu gegn Manchester United í vikunni.
Hinn 23 ára gamli Holding verður frá keppni í sex til níu mánuði vegna meiðslanna.
Holding kom til Arsenal frá Bolton árið 2016 en hann hefur leikið tíu leiki í ensku úrvaldseildinni á þessu tímabili.
Arsenal er þó ekki bara að missa úr vörninni því varnarmaðurinn reyndi Laurent Koscielny er við það að snúa aftur í liðið eftir að hafa verið frá keppni síðan í mars vegna meiðsla á hásin.
Athugasemdir