Þeir stuðningsmenn Manchester United sem eru með fötlun vilja fá hlífðarnet yfir sig á heimaleikjum liðsins.
Þeir sitja undir stúku áhorfenda gestaliðsins sem eiga það til að kasta hinum ýmsu aðskotahlutum inn á völlinn.
Samtök stuðningsmanna Manchester United með fötlun segja að blysum og smápeningum rigni yfir sig á leikjum liðsins og þá hafi áhorfendur einnig fengið bökur í sig og flöskur fullar af hlandi.
Það ætti ekki að vera mikið vandamál fyrir félagið að gleðja stuðningsmenn sína, en hlífðarnet var notað á heimaleikjunum gegn Juventus og Young Boys í Meistaradeildinni.
Athugasemdir