Fotbolti.net
07.12.19 - 09:30
Ívan Guðjón Baldursson

Arsenal án sigurs síðan David Luiz sagðist vilja vinna deildina

Arsenal án sigurs síðan David Luiz sagðist vilja vinna deildina
Canon

Mynd: Getty Images

David Luiz skipti úr Chelsea yfir til Arsenal síðasta sumar og sagðist hafa skipt yfir til að vinna titla. Luiz og félagar fóru vel af stað á upphafi tímabils og um miðjan október sagði varnarmaðurinn að Arsenal gæti barist um titilinn.
Nú eru sjö vikur liðnar frá þessum ummælum hans og er Arsenal ekki búið að vinna einn einasta úrvalsdeildarleik. Liðið er búið að tapa fyrir Sheffield United, Leicester og Brighton og gera jafntefli við Norwich, Southampton, Wolves og Crystal Palace.

Arsenal situr í tíunda sæti deildarinnar með 19 stig eftir 15 umferðir, fimm stigum fyrir ofan Everton sem er í fallsæti.

Næsti leikur liðsins er grannaslagur á útivelli gegn West Ham, sem lagði Chelsea á Stamford Bridge um síðustu helgi. Ljóst er að sá leikur mun ekki hafa áhrif á titilbaráttuna.

Arsenal hefur ekki tekist að vinna einn af síðustu níu leikjum sínum í öllum keppnum. Það er versta gengi félagsins síðan liðið fór í gegnum tíu leiki án sigurs í byrjun árs 1977.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Man City10+821
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Everton10+216
6Liverpool9+215
7Brentford9+714
8Leeds10+214
9Bournemouth9+112
10Tottenham10-112
11Newcastle10-312
12Aston Villa9-312
13Hull City10011
14Ipswich Town9-411
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd9-57
19Crystal Palace9-127
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.