Fotbolti.net
07.12.19 - 14:45
Ívan Guðjón Baldursson

Championship: Sjötti sigur Leeds í röð

Championship: Sjötti sigur Leeds í röð
Canon

Mynd: Getty Images

Huddersfield 0 - 2 Leeds United
0-1 Ezgjan Alioski ('50)
0-2 Pablo Hernandez ('78)
Leeds United vann sinn sjötta deildarleik í röð er liðið heimsótti Huddersfield í dag.

Huddersfield, sem féll úr úrvalsdeildinni í vor, hefur átt erfitt uppdráttar í Championship. Staðan var þó markalaus í dag eftir jafnan og litlausan fyrri hálfleik.

Ezgjan Alioski skoraði snemma í síðari hálfleik og gerði kempan Pablo Hernandez út um viðureignina með marki á 78. mínútu.

Leeds er með eins stigs forystu á helstu keppinautum sínum, West Bromwich Albion. West Brom fær Swansea í heimsókn á morgun.

Huddersfield er tveimur stigum fyrir ofan fallsvæðið, með 18 stig eftir 20 umferðir.

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Birmingham15+1429
2Middlesbrough15+1129
3Stoke City15+629
4Wolves15+828
5West Brom15+828
6Swansea15+426
7Southampton15+1424
8QPR15+624
9West Ham15+1423
10Sheffield Utd15+222
11Portsmouth15+222
12Norwich15+821
13Blackburn15-121
14Cardiff City15018
15Wrexham15-218
16Millwall15-418
17Bristol City15-818
18Bolton15-917
19Charlton Athletic15-1017
20Watford15-1015
21Lincoln City15-1115
22Burnley15-910
23Derby County15-1610
24Preston NE15-178
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.