Fotbolti.net
07.12.19 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
SubwayÍtalska deildin

Ítalía í dag - Lazio tekur á móti Juve

Ítalía í dag - Lazio tekur á móti Juve
Canon

Mynd: Getty Images

Það eru þrír leikir á dagskrá í ítalska boltanum í dag. Fjörið byrjar á leik Atalanta gegn Verona í Bergamó.
Heimamenn geta farið upp í 5. sæti og jafnað Cagliari á stigum með sigri á meðan gestirnir geta komist uppfyrir Napoli í 7. sæti með jákvæðum úrslitum.

Fallbaráttulið Udinese tekur svo á móti Napoli, sem er fimm stigum á eftir Atalanta. Ansi heitt er undir Carlo Ancelotti vegna slæms gengis Napoli og hefur hann verið orðaður við ýmis stjóralaus félög á Englandi.

Ítalíumeistarar Juventus eiga að lokum útileik gegn sterku liði Lazio sem situr í þriðja sæti deildarinnar, sex stigum eftir Juve í öðru sæti.

Ciro Immobile hefur verið funheitur og er kominn með 17 mörk á leiktíðinni og verður áhugavert að sjá hvernig Matthijs de Ligt og félagar takast á við hann.

Lazio er á fleygiferð í Serie A og er búið að vinna sex leiki í röð. Ekki gengur jafn vel í Evrópudeildinni þar sem Lazio á í hættu á að detta úr keppni eftir tvo tapleiki í röð gegn Celtic.

Leikir dagsins:
14:00 Atalanta - Verona
17:00 Udinese - Napoli (Stöð 2 Sport 2)
19:45 Lazio - Juventus (Stöð 2 Sport 2)

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio11+1629
2Inter11+1528
3Roma11+2127
4Milan11+1024
5Como11+823
6Frosinone11+920
7Juventus11+318
8Bologna11+217
9Cagliari11-516
10Napoli11+415
11Torino11-214
12Atalanta11-314
13Genoa11-513
14Lecce11-1010
15Fiorentina11-89
16Parma11-88
17Sassuolo11-138
18Monza11-87
19Venezia11-136
20Udinese11-135
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.