Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mið 07. desember 2022 22:25
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Æfingaleikur: 17 ára á skotskónum fyrir Man Utd
Martial var á skotskónum
Martial var á skotskónum
Mynd: Getty Images

Manchester United mætti Cadiz í æfingaleik á Spáni í kvöld.


Menn á borð við Anthony Martial, Alejandro Garnacho, Scott McTominay og Victor Lindelöf voru í byrjunarliðinu.

Spænska liðið var komið með tveggja marka forystu eftir tæplega stundarfjórðung en Martial minnkaði muninn með marki af vítapunktinum áður en flautað var til leikhlés.

Erik ten Hag gerði 10 breytingar á liðinu í hálfleik, það var aðeins Martin Dubravka í markinu sem hélt sæti sínu. Sex af þeim sem komu inn á voru í u18 ára liði Man Utd sem vann FA bikarinn á síðustu leiktíð.

Hinn 17 ára gamli Kobbie Mainoo jafnaði metin fyrir United strax í upphafi síðari hálfleiks en Cadiz skoraði tvö mörk áður en leik lauk og því 4-2 sigur spænska liðsins staðreynd.

Crystal Palace gerði 2-2 jafntefli gegn Trabzonspor í dag. Odsonne Edouard og Jean-Philippe Mateta skoruðu mörkin.


Athugasemdir
banner
banner
banner