Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 07. desember 2022 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Myndband: Það varð allt vitlaust þegar Ronaldo var að koma inn á
Mynd: Getty Images
Það er greinilegt að Fernando Santos þjálfari portúgalska landsliðsins sé ekki ánægður með Cristiano Ronaldo til þessa á HM.

Ronaldo byrjaði á bekknum í gær þegar Portúgal valtaði yfir Sviss 6-1 en hann kom inn á sem varamaður undir lok leiksins.

Hinn 21 árs gamli Goncalo Ramos kom inn í byrjunarliðið í hans stað en hann gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu í leiknum.

Ramos var tekinn af velli fyrir Ronaldo en það varð allt vitlaust á vellinum þegar í ljós kom að Ronaldo væri að koma inn á. Portúgölsku stuðningsmennirnir voru greinilega ekki hrifnir af því að Ronaldo hafi byrjað á bekknum.

Myndband sem Rúv deildi af fagnaðarlátum stuðningsmanna Portúgal þegar Ronaldo var að koma inn á má sjá hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner