Þorgrímur Þráinsson, starfsmaður íslenska landsliðins, fagnar sextugs afmæli sínu í dag.
Þorgrímur er að sjálfsögðu á sínum stað með íslenska landsliðshópnum í Katar en framundan eru vináttuleikir gegn Svíþjóð og Eistlandi.
Fyrir fyrstu æfingu landsliðsins í dag fékk Þorgrímur afmælissöng frá leikmönnum og starfsmönnum í tilefni dagsins.
Þorgrímur hefur verið starfsmaður landsliðsins í áraraðir og fengið mikið lof fyrir sín störf.
Fótbolti.net sendir honum bestu afmæliskveðjur í tilefni dagsins!
Athugasemdir