Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 08. janúar 2021 19:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Daði um möguleg skipti í Vestra: Enginn búinn að tala við mig
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Daði Freyr Arnarsson, markvörður FH, var í dag orðaður við Vestra í hlaðvarpsþættinum Dr. Football.

„Daði markmaður FH er líklega á leið Vestra líka," sagði Kristján Óli Sigurðsson í þætti dagsins. Áður hafði verið talað um Guðjón Pétur Lýðsson og möguleikann á því að miðjumaðurinn færi vestur.

„Robert Blakala verður ekki áfram og ég held að Daði sé klár," sagði Mikael Nikulásson.

Fótbolti.net spurði Daða hvort hann gæti tjáð sig um þessar sögusagnir.

„Ég var að heyra þetta líka í dag en það er enginn búinn að tala við mig um það," sagði Daði.

Daði er 22 ára gamall og er uppalinn hjá Bí/Bolungarvík. Tímabilið 2019 varði hann mark FH í fimmtán deildarleikjum en einungis í einum deildarleik á liðinni leiktíð.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner