Matthijs de Ligt, varnarmaður Juventus, hefur verið greindur með kóróna veiruna en þetta staðfesti félagið í dag.
De Ligt spilað allan leikinn í hjarta varnarinnar hjá Juventus sem var sigraði AC Milan á útivelli í fyrradag. Hann er nú kominn í sóttkví.
Þetta eru ekki góðar fréttir fyrir Andrea Pirlo og Juventus en liðið er aftur búið að gera sig gildandi í toppbaráttunni á Ítalíu eftir sigurinn á miðvikudaginn.
Juventus mætir Sassuolo á sunnudagskvöld í mikilvægum leik. Alex Sandro og Juan Cuadrado misstu af leiknum gegn AC Milan vegna veirunnar.
Athugasemdir