Hólmbert Aron Friðjónsson er byrjaður að æfa með Brescia eftir að hafa klárað endurhæfingu sína vegna meiðsla.
Brescia keypti Hólmbert frá Álasund í Noregi í byrjun október en hann hefur ekki ennþá spilað sinn fyrsta leik á Ítalíu.
Hólmbert hefur verið að glíma við meiðsli en hann hefur nú hafið æfingar á fullu með liðsfélögum sínum.
Hólmbert skoraði mark íslenska landsliðsins í 5-1 tapi gegn Belgíu í september og fiskaði vítaspyrnu gegn Englendingum í sama landsliðsglugga. En meiðslin urðu til þess að hann var út úr myndinni í landsleikjunum í október og nóvember.
Brescia er í ellefta sæti í Serie B en íslenski landsliðsmaðurinn Birkir Bjarnason leikur einnig með liðinu.
Athugasemdir