Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, hefur staðfest að sóknarmaðurinn Odion Ighalo muni spila gegn Watford í enska bikarnum annað kvöld.
Ighalo er enn á láni hjá United frá Shanghai Greenland Shenhua í Kína en lánssamningurinn rennur út í enda mánaðarins.
Hann hefur aðeins komið við sögu í einum úrvalsdeildarleik á tímabilinu.
„Þetta er sérstakur leikur fyrir Ighalo og hann mun koma við sögu. Hann er í hópnum. Hann hefur æft vel og það hefur verið erfitt fyrir hann að vera svona oft utan hóps því hann stóð sig mjög vel fram að sumri," segir Solskjær.

Á fréttamannafundi í dag staðfesti Solskjær að varnarmaðurinn Marcos Rojo og markvörðurinn Sergio Romero væru á förum frá félaginu en þeir verða samningslausir í sumar.
Athugasemdir