Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 08. janúar 2021 23:00
Aksentije Milisic
Kante meiddur - Ekki með í næstu tveimur leikjum
Mynd: Getty Images
N'Golo Kante, leikmaður Chelsea, á við meiðsli í læri að stríða og verður því ekki með Chelsea í leiknum gegn Morecambe í FA bikarnum um helgina.

Þá er Kante í leikbanni í ensku úrvalsdeildinni og missir af næsta deildarleik sem er gegn Fulham. Lampard segir hins vegar að meiðslin hjá Kante séu ekki alvarleg og að hann ætti að vera klár fljótlega.

Kante hefur spilað mikið að undanförnu en hann hefur byrjað fjóra leiki á tíu dögum og hefur það líklega sitt að segja í þessum meiðslum.

Reece James og Andreas Christensen eru líka meiddir og nú hefur Kante bæst við þann hóp.

Mikil pressa er á Frank Lampard, stjóra Chelsea, en liðinu hefur gengið mjög illa að undanförnu en hann fékk mikinn pening til þess að eyða í félagsskiptaglugganum síðasta sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner