Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 08. janúar 2021 22:40
Aksentije Milisic
Newcastle undirbýr tilboð í Sidibe
Mynd: Getty Images
Newcastle United hefur áhuga á Djibril Sidibe varnarmanni Monaco og undirbýr nú tilboð í leikmanninn.

Newcastle hefur haft samband við Monaco um að fá þennan 28 ára gamla hægri bakvörð en hann var í hópnum hjá Frakklandi sem varð heimsmeistari árið 2018.

Sidibe mun kosta um 6,3 milljónir punda en hann hefur verið hjá Monaco árið 2016 og unnið frönsku deildina einu sinni.

Sidibe var á láni hjá Everton á síðustu leiktíð en áður hafði hann verið orðaður við lið á borð við Arsenal og Manchester United.

Newcastle er í 15. sæti deildarinnar og hefur liðið ekki unnið í síðustu fimm deildarleikjum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner