Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 08. janúar 2021 13:30
Magnús Már Einarsson
Sakho á leið til Nice
Mynd: Getty Images
Mamadou Sakho, varnarmaður Crystal Palace, er að ganga í raðir Nice samkvæmt fréttum frá Frakklandi.

Hinn þrítugi Sakho kom til Crystal Palace frá Liverpool fyrir fjórum árum síðan.

Hann er í augnablikinu á eftir Gary Cahill, Cheick Kouyate, Scott Dann og James Tomkins í röðinni í vörn Crystal Palace.

Roy Hodgson, stjóri Palace, vill lækka meðalaldurinn í hópnum og láta bæði Sakho og Tomkins fara.

Nice hefur verið að styrkja vörnina fyrir síðari hluta tímabils í Frakklandi en félagið fékk einnig miðvörðinn unga William Saliba á láni í vikunni.
Athugasemdir
banner