Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   fös 08. janúar 2021 13:00
Magnús Már Einarsson
Sepp Blatter á sjúkrahúsi
Mynd: Getty Images
Sepp Blatter, fyrrum forseti FIFA, dvelur á sjúkrahúsi þessa stundina eftir að hafa veikst alvarlega.

Hinn 84 ára gamli Blatter er þó ekki í lífshættu að sögn Corinne Blatter Andenmatten, dóttur hans.

„Faðir minn er á sjúkrahúsi. Hann er að verða betri með hverjum degi en hann þarf tíma til að hvílast," sagði Corinne.

„Fyrir hönd fjölskyldu minnar þá vil ég biðja um frið."

Blatter var forseti FIFA frá 1998-2015 en hann var dæmdur í átta ára bann frá fótbolta árið 2016 eftir spillingarmál.
Athugasemdir
banner
banner