Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 08. janúar 2021 20:35
Aksentije Milisic
Tottenham reynir að fá Perisic á láni
Mynd: Getty Images
Tottenham hefur áhuga á að fá Króatann Ivan Perisic á láni frá Inter Milan og eru félögin að ræða málin sín á milli.

Þessi 31 árs gamli kantmaður lék með Bayern Munchen á síðasta tímabili en hann hefur ekki fengið að byrja marga leiki hjá Inter að undanförnu og gæti því verið opinn fyrir því að fara á láni.

Jose Mourinho, stjóri Tottenham, er sagður mjög áhugasamur yfir því að fá Perisic og liðin séu nú að reyna að ná samkomulagi.

Perisic skoraði sjö mörk fyrir Bayern á síðasta tímabili þar sem hann vann þýsku deildina, þýska bikarinn og Meistaradeild Evrópu með liðinu.

Samningur leikmannsins við Inter rennur út sumarið 2022 en hann er ekki beint fyrsti maður á blað hjá Antonio Conte, stjóra Inter. Hann hefur spilað 21 leik en aðeins helming þeirra í byrjunarliðinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner