Belgíski framherjinn Romelu Lukaku er mættur aftur í byrjunarlið Chelsea sem mætir Chesterfield í 3. umferð enska bikarsins klukkan 17:30.
Lukaku var settur í kælingu fyrir leik liðsins gegn Liverpool eftir að hann kom fram í viðtali við Sky Italia og gagnrýndi leikkerfi Thomas Tuchel.
Tuchel tók Lukaku úr hópnum fyrir leikinn gegn Liverpool og átti fund með leikmanninum. Þeir leystu málin og er Lukaku nú mættur aftur í liðið.
Hann byrjar frammi með Timo Werner. Tuchel stillir upp nokkuð sterku liði en Callum Hudson-Odoi er í bakverðinum í dag.
Chelsea: Bettinelli; Hudson-Odoi, Christensen, Sarr, Hall; Ziyech, Kovacic, Saul, Pulisic; Lukaku, Werner.
Athugasemdir