Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 08. janúar 2022 18:03
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Chelsea að fara illa með Chesterfield - Hudson-Odoi með glæsimark
Mynd: EPA
Chelsea og Chesterfield eigast við í FA Bikarnum á Englandi þessa stundina.

Það þarf mikið að gerast svo Chesterfield komist inn í leikinn en Chelsea komst í þriggja marka forystu eftir tuttugu mínútna leik.

Timo Werner kom liðinu yfir strax á sjöttu mínútu. Callum Hudson-Odoi skoraði annað markið með skoti fyrir utan teig og Romelu Lukaku skoraði það þriðja.

Markið hans Hudson-Odoi má sjá með því að smella hér.

Athugasemdir
banner
banner
banner