lau 08. janúar 2022 22:25
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Fótbolta.net mótið: Dramatík í sigri Kórdrengja á Selfossi
Magnús Þórir
Magnús Þórir
Mynd: Njarðvík
Tveir leikir fóru fram í B-deild fótbolta.net mótsins í dag.

Í Nettóhöllinni í Reykjanesbæ áttust við Njarðvík og Þróttur Vogum. Heimamenn komust í 2-0 en þá minnkaði Nikola Dejan Djuric metin fyrir Þrótt.

Njarðvíkingar skoruðu þá tvö mörk í viðbót áður en Þróttarar minnkuðu aftur muninn. 4-2 sigur Njarðvík staðreynd.

Í hinum leik dagsins unnu Kórdrengir 2-1 sigur á Selfyssingum. Kórdrengir komust yfir og Selfyssingar náðu að jafna. Áður en Selfoss jafnaði vildu Kórdrengir meina að þeir hafi skorað mark en dómari leiksins vildi meina að boltinn hafi ekki farið yfir línuna.

Í stöðunni 2-1 brenndu svo Selfyssingar af vítaspyrnu.

Njarðvík 4-2 Þróttur Vogum
Mörk Njarðvíkur: Magnús Þórir Matthíasson x2, Bergþór Ingi Smárason, Kenneth Hogg
Mörk Þróttar: NIkola Dejan Djuric og Sjálfsmark.

Kórdrengir 2-1 Selfoss
Mörk Kórdrengja: Leonard Sigurðsson og Arnleifur Hjörleifsson
Mark Selfoss: Þorlákur Breki Baxter
Athugasemdir
banner
banner