Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 08. janúar 2022 21:41
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Reykjavíkurmót kvenna: KR lagði Fram í opnunarleiknum
Hildur Björg Kristjánsdóttir kom KR yfir
Hildur Björg Kristjánsdóttir kom KR yfir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fram 2-4 KR
0-1 Hildur Björg Kristjánsdóttir
1-1 Oddný Sara Helgadóttir
1-2 Ísabella Sara Tryggvadóttir
1-3 Margrét Edda Lian Bjarnadóttir
1-4 Ísabella Sara Tryggvadóttir
2-4 Ásta Fanney Hreiðarsdóttir

Fram og KR áttust við í Reykjavíkurmóti kvenna í dag.

KR komst yfir strax á fjórðu mínútu en Fram jafnaði metin eftir hálftíma leik. KR stúlkur komust hinsvegar yfir og voru marki yfir í hálfleik.

KR skoraði tvö mörk til viðbótar í síðari hálfleik áður en Fram klóraði í bakkann. 4-2 lokatölur.

Þetta var fyrsti leikurinn í A-riðli en Valur og Víkingur mætast á mánudaginn.
Athugasemdir
banner
banner