Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   lau 08. janúar 2022 20:07
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Þýskaland: Ótrúleg endurkoma hjá Dortmund
Eintracht Frankfurt 2 - 3 Borussia D.
1-0 Rafael Borre ('15 )
2-0 Rafael Borre ('24 )
2-1 Thorgan Hazard ('71 )
2-2 Jude Bellingham ('87 )
2-3 Mahmoud Dahoud ('89 )

Frankfurt og Dortmund áttust við í þýsku deildinni í mögnuðum leik í kvöld.

Frankfurt var 2-0 yfir í hálfleik en Thorgan Hazard minnkaði muninn eftir 70 mínútna leik, fimm mínútum eftir að hann kom inná sem varamaður.

Jude Bellingham skoraði annað markið með skalla þremur mínútum fyrir leikslok og á síðustu mínútu venjulegs leiktíma fullkomnaði Mahmoud Dahoud endurkomuna með marki.

Boltinn barst til hans rétt fyrir utan vítateiginn og hann lagði boltann framhjá markmanni Frankfurt. 3-2 sigur Dortmund staðreynd.
Athugasemdir
banner
banner
banner