Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 08. febrúar 2020 15:21
Elvar Geir Magnússon
Björgvin Stefáns með þrennu fyrir KV sem er komið í úrslit
C-deild Fótbolta.net mótsins
Björgvin Stefánsson.
Björgvin Stefánsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KV 7 - 1 Hvíti Riddarinn

KV er komið í úrslitaleik C-deildar Fótbolta.net mótsins en það varð ljóst í dag þegar Vesturbæingar unnu 7-1 sigur gegn Hvíta Riddaranum úr Mosfellsbæ.

KV leikur í 3. deild og mætir 2. deildarliði Kórdrengja í úrslitaleik.

Athygli vekur að Björgvin Stefánsson, sóknarmaður KR, lék með KV í dag og skoraði hann þrennu í leiknum.

Björgvin hefur þurft að sætta sig við mikla bekkjarsetu hjá KR og fékk að spila þennan leik með KV í dag en sterk tengsl eru milli félagana tveggja,

Þá lék Ingólfur Sigurðsson með KV í leiknum en hann er án félags.
Íslenski boltinn - Áhugaverður leikmaður fer norður
Athugasemdir
banner
banner