Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 08. febrúar 2020 20:34
Brynjar Ingi Erluson
Championship: Leeds tapað fjórum af síðustu fimm
Sammy Ameobi fagnar marki sínu í kvöld
Sammy Ameobi fagnar marki sínu í kvöld
Mynd: Getty Images
Nott. Forest 2 - 0 Leeds
1-0 Sammy Ameobi ('31 )
2-0 Tyler Walker ('90 )

Nottingham Forest heldur áfram að berjast um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni en liðið vann Leeds 2-0 á City Ground í dag.

Sammy Ameobi, fyrrum leikmaður Newcastle, skoraði fyrsta markið á 31. mínútu áður en Tyler Walker gerði út um leikinn með marki í uppbótartíma.

Þetta var fjórða tap Leeds í síðustu fimm leikjum liðsins í deildinni en liðið er þrátt fyrir það enn í 2. sæti með 55 stig.

Nottingham Forest er nú með 54 stig í 4. sæti en aðeins sex stig skilja að liðin í 1. og 7. sæti deildarinnar og má því búast við mikilli spennu út tímabilið.
Athugasemdir
banner
banner
banner