Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 08. febrúar 2020 21:20
Brynjar Ingi Erluson
Fótbolta.net mótið: Augnablik spilar um 3. sætið
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Augnablik 5 - 2 Árborg
Mörk Augnabliks:
Þorleifur Úlfarsson 4
Bjarni Þór Hafstein 1

Augnablik vann Árborg 5-2 í C-deild Fótbolta.net mótsins í dag og er því ljóst að liðið spilar við Kára um 3. sætið.

Þorleifur Úlfarsson gerði sér lítið fyrir og skoraði fjögur mörk fyrir Augnablik og þá gerði Bjarni Þór Hafstein eitt mark.

Eins og áður segir þá spilar Augnablik við Kára um 3. sætið en Árborg mætir KFS í leik um 5. sætið.

Oliver Sigurjónsson, leikmaður Breiðabliks, lék með Augnablik í dag en hann fær ekki leikheimild með Blikum fyrr en 22. febrúar útaf félagaskiptareglum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner