Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 08. febrúar 2020 16:37
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Góður útisigur Atalanta gegn Fiorentina
Duvan Zapata skoraði fyrir Atalanta
Duvan Zapata skoraði fyrir Atalanta
Mynd: Getty Images
Fiorentina 1 - 2 Atalanta
1-0 Federico Chiesa ('32 )
1-1 Duvan Zapata ('49 )
1-2 Ruslan Malinovskiy ('72 )

Atalanta lagði Fiorentina að velli, 2-1, er liðin mættust í Seríu A á Ítalíu í dag en leikurinn fór fram á Artemio Franchi leikvanginum í Flórens.

Það var ítalska undrið Federico Chiesa sem kom heimamönnum yfir á 32. mínútu og stóðu leikar þannig í hálfleik áður en gestirnir rönkuðu við sér í þeim síðari.

Kólumbíski framherjann Duvan Zapata jafnaði metin á 49. mínútu áður en Ruslan Malinovskiy gerði sigurmarkið um það bil tuttugu mínútum fyrir leikslok.

Atalanta fer með sigrinum í 42 stig og er liðið í 4. sæti deildarinnar, tólf stigum frá toppliði Juventus.
Athugasemdir
banner
banner
banner