Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 08. febrúar 2020 05:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalía í dag - Juventus heimsækir Hellas Verona
Ronaldo og félagar fara í heimsókn til Hellas Verona. Ronaldo varð 35 ára í vikunni.
Ronaldo og félagar fara í heimsókn til Hellas Verona. Ronaldo varð 35 ára í vikunni.
Mynd: Getty Images
Laugardagar eru yfirleitt frekar rólegri en sunnudagar í ítalska boltanum. Á þessum laugardegi munu fara fram þrír leikir í ítölsku úrvalsdeildinni.

Fyrsti leikur er klukkan 14:00 þar sem Fiorentina tekur á móti Atalanta. Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 4, en fyrir leikinn er Atalanta í Meistaradeildarbaráttu og Fiorentina í neðri hlutanum.

Torino fer með nýjan þjálfara inn í leik sinn gegn Sampdoria. Walter Mazzarri er horfinn á braut og Moreno Longo er tekinn við. Longo er fyrrum leikmaður Torino og hefur verið að gera flotta hluti í þjálfun yngri flokka hjá félaginu.

Mazzarri var rekinn eftir slæm úrslit að undanförnu, 7-0 tap gegn Atalanta og 4-0 tap gegn Lecce.

Í lokaleiknum mætast svo Hellas Verona og topplið deildarinnar, Juventus. Hellas Verona gerði jafntefli gegn AC Milan um síðustu helgi og spurning hvort þeir stríði Juventus.

laugardagur 8. febrúar
14:00 Fiorentina - Atalanta (Stöð 2 Sport 4)
17:00 Torino - Sampdoria
19:45 Verona - Juventus (Stöð 2 Sport)
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 33 27 5 1 79 18 +61 86
2 Milan 33 21 6 6 64 39 +25 69
3 Juventus 33 18 10 5 47 26 +21 64
4 Bologna 33 17 11 5 48 26 +22 62
5 Roma 33 17 7 9 59 39 +20 58
6 Atalanta 32 16 6 10 59 37 +22 54
7 Lazio 33 16 4 13 42 35 +7 52
8 Napoli 33 13 10 10 50 41 +9 49
9 Fiorentina 32 13 8 11 45 36 +9 47
10 Torino 33 11 13 9 31 29 +2 46
11 Monza 33 11 10 12 35 43 -8 43
12 Genoa 33 9 12 12 35 40 -5 39
13 Lecce 33 8 11 14 30 48 -18 35
14 Cagliari 33 7 11 15 36 56 -20 32
15 Verona 33 7 10 16 31 44 -13 31
16 Empoli 33 8 7 18 26 48 -22 31
17 Udinese 33 4 16 13 31 50 -19 28
18 Frosinone 33 6 10 17 40 63 -23 28
19 Sassuolo 33 6 8 19 39 65 -26 26
20 Salernitana 33 2 9 22 26 70 -44 15
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner