Christian Benteke jafnaði metin fyrir Crystal Palace gegn Everton á Goodison Park en markið var skrautlegt fyrir enska landsliðsmarkvörðinn Jordan Pickford.
Palace vann boltann á miðjunni og Wilfried Zaha átti glæsilega sendingu út hægra megin.
Benteke var mættur lagði hann á hægri áður en hann lét vaða á nærstöngina. Pickford reyndi að verjast en á einhvern klaufalegan hátt mistókt honum ætlunarverk sitt.
Richarlison er búinn að koma Everton aftur yfir og getur Pickford því andað aðeins léttar.
Hægt er að sjá markið hjá Benteke hér fyrir neðan.
Sjáðu markið hjá Benteke
Athugasemdir