Ejub Purisevic, þjálfari Ólafsvíkur Víkinga, var í viðtali eftir leik liðsins gegn KR í kvöld. KR sigraði leikinn 5-0. Víkingur Ó. er með eitt stig eftir fyrstu þrjá leiki sína í Lengjubikarnum.
Ejub var m.a. spurður út í leikinn, leikmannahópinn, framhaldið og sumarið.
„Við notum rosalega marga heimastráka, þeir voru misjafnlega góðir. Þeir fengu tækifæri í fyrra og munu fá tækifæri í sumar," sagði Ejub.
„Það kemur í ljós, það getur stundum verið erfitt að smíða nýtt lið og mæta svo góðu liði í byrjun mars eins og í kvöld"
„Eru ekki öll lið að stefna á að fara upp? Það mun svo koma í ljós. Við þurfum að slípa okkur betur saman og mögulega fá nýja leikmenn inn."
„Við förum í æfingaferð þegar Lengjubikarinn klárast. Í kvöld gerðum við of mörg einstaklingsmistök og náðum aldrei að byrja okkar leik."
„Ég er alltaf sáttur með hópinn og geri alltaf eins vel og ég get með það sem ég hef að vinna með."
Viðtalið í heild má sjá hér að ofan.

Athugasemdir