Joe Allen verður ekki meira með Stoke á leiktíðinni og mun velski miðjumaðurinn einnig vera fjarverandi þegar Wales leikur á EM í sumar.
Allen sleit hásin í gær í sigri Stoke á Hull. Atvikið átti sér stað rétt fyrir hálfleik.
Allen mun fara í aðgerð í vikunni en ljóst er að þetta er mikill skellur fyir velska landsliðið.
Allen sleit hásin í gær í sigri Stoke á Hull. Atvikið átti sér stað rétt fyrir hálfleik.
Allen mun fara í aðgerð í vikunni en ljóst er að þetta er mikill skellur fyir velska landsliðið.
Allen sem er 29 ára var lykilmaður í liði Wales sem komst í undanúrslit árið 2016.
„Þetta er mikill missir, hann er frábær maður og frábær leikmaður. Mér líður illa fyrir hans hönd, allt var að ganga vel og hann á leiðinni á EM sem hann var spenntur fyrir," sagði Mihcael O'Neill, stjóri Stoke, í viðtali eftir leikinn í gær.
Athugasemdir