Ákvörðun var tekin hjá Leeds í morgun að finna nýjan stað fyrir kvennalið félagsins og akademíu félagsins en þetta er gert til að reyna sporna við dreyfingu kórónaveirunnar.
Kvennaliðið og akademían verður nú færð á nýjan stað á meðan karlaliðið verður áfram á æfingasvæði félagsins.
Kvennaliðið og akademían verður nú færð á nýjan stað á meðan karlaliðið verður áfram á æfingasvæði félagsins.
Hugmyndin er að vernda hópinn hjá karlaliði Leeds sem er kominn upp á topp B-deildarinnar á Englandi.
„Eftir aukna hættu á COVID-19 smitum höfum við tekið þá ákvörðun að færa kvennalið ásamt akademíunni á nýjan stað tafarlaust," segir í tilkynningu frá Leeds.
📰 Following the increased threat posed by COVID-19, further restrictions at Thorp Arch have been put in place
— Leeds United (@LUFC) March 8, 2020
Athugasemdir