sun 08. mars 2020 12:50
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Myndband: Tadic las samherja sínum pistilinn
Mynd: Getty Images
Ajax vann Heerenveen, 1-3, á útivelli í gær. Dusan Tadic var maður leiksins, skoraði tvö mörk og lagði upp eitt.

Staðan var 0-0 í leikhléi og á 41. mínútu var Dusan Tadic búinn að fá nóg af liðsfélaga sínum.

Tadic, sem var fyrirliði Ajax í leiknum, gekk upp að Sergino Dest og las honum pistilinn. Tadic var alls ekki sáttur við Dest. Tadic byrjaði að skammast en þegar Dest svaraði fór Tadic nær honum og kláraði eldræðu sína.

Myndband af atvikinu má sjá hér að neðan. Ajax er ásamt AZ á toppi deildarinnar í Hollandi en Ajax er með betri markatölu.


Athugasemdir
banner
banner
banner