Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 08. mars 2021 13:30
Magnús Már Einarsson
Laun Mbappe of há fyrir Manchester City
Mynd: Getty Images
The Athletic greinir frá því í dag að ólíklegt sé að Manchester City blandi sér í kapphlaupið um Kylian Mbappe.

Mbappe verður samningslaus sumarið 2022 og PSG gæti selt hann í sumar.

Launakröfur franska landsliðsmannsins eru mjög háar og þrátt fyrir að Manchester City hafi eytt háum fjárhæðum í leikmenn í gegnum tíðina þá vill félagið ekki brjóta launaþak sitt til að skapa óánægju í hópnum.

Því er ólíklegt að Manchester City reyni við Mbappe.

Manchester City gæti hins vegar reynt að fá Erling Braut Haaland framherja Borussia Dortmund eða Romelu Lukaku framherja Inter að sögn The Athletic.
Athugasemdir
banner
banner