Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mið 08. apríl 2020 23:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Jói Berg sendir kveðju: Fariði vel með ykkur - Söknum ykkar
Mynd: Getty Images
Jóhann Berg Guðmundsson, leikmaður Burnley í ensku úrvalsdeildinni, sendi í dag stuðningsmönnum félagsins kveðju.

Burnley birti myndband á Twitter þar sem Jóhann Berg segir leikmenn sakna stuðningsmannanna og vonar að þeir séu að hugsa vel um sig.

Jói segist vona að ungir aðdáendur séu að halda áfram að æfa sig. Hann hvetur þá skólakrakka að halda áfram með heimanámið þegar páskarfríið klárast.

Jóhann hefur átt erfiða leiktíð þar sem hann hefur glímt við meiðsli. Undir lok mynbandsins hvetur hann fólk til að halda sig innandyra eins oft og hægt er. Myndbandið má sjá hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner