Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 08. apríl 2021 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Kimmich skapaði tíu færi gegn PSG - Navas varði tíu skot
Keylor Navas var meðal hetja PSG í gær.
Keylor Navas var meðal hetja PSG í gær.
Mynd: Getty Images
Evrópumeistarar FC Bayern tóku á móti Paris Saint-Germain í sturluðum fótboltaleik í gærkvöldi.

Bæði lið spiluðu glimrandi knattspyrnu í galopnum leik sem lauk með 2-3 sigri PSG, en seinni leikurinn er eftir í París.

PSG getur þakkað markverði sínum Keylor Navas að stórum hluta fyrir sigurinn þar sem hann varði hvorki meira né minna en tíu marktilraunir í leiknum.

Hinu megin var Joshua Kimmich gríðarlega skapandi þar sem honum tókst að búa til tíu marktækifæri. Því miður fyrir hann var Navas í stuði á milli stanganna.

Kimmich var þar aðeins tveimur sköpuðum færum frá meti Mesut Özil sem hann setti með Real Madrid gegn Tottenham í apríl 2011, þegar hann skapaði tólf færi.
Athugasemdir
banner
banner