Heimild: RÚV
Arnar Sveinn Geirsson, forseti Leikmanasamtaka Íslands, var til viðtals á RÚV í kvöld. Þar segir hann frá því að dæmi séu um það að lið í efstu deild hafi skert laun leikmanna án þess að fá samþykki frá leikmönnunum.
Arnar segir að félög hafi einhliða ákveðið launalækkun hjá samningsbundnum leikmönnum án þess að samkomulag hafi verið gert. Slíkt sé einfaldlega óheimilt og hafi leikmenn leitað til samtakanna vegna slíkra mála.
„Staðan er þannig að það er réttur leikmanna að fá laun sín greidd - staðan er erfið hjá mörgum félögum og leikmenn þurfa að sýna því ákveðna tillitsemi og reyna að finna lausnir með félaginu."
Arnar segir einnig dæmi um að laun hafi verið lækkuð hjá öllum leikmönnum kvennaliðs án nokkurs samráðs.
„Í því tilfelli sem við þekkjum er körlunum boðinn fundur og rætt við karlaliðið; útskýrt hvernig málin eru og staðan tekin."
„Á meðan kvennamegin fékk enginn neina tilkynningu um eitt eða neitt heldur bara lækkun á samningi og þær höfðu í rauninni ekkert um það að segja, þó þær hafi allt um það að segja,“
„Það er auðvitað mjög miður, mig langar ekki að segja að þetta sé viljandi gert heldur hafi gerst óvart. Ég vona það innilega og (vona) að þetta verði leiðrétt en þetta er auðvitað bara glórulaust,“ sagði Arnar Sveinn í viðtali við RÚV.
Athugasemdir