banner
   fös 08. maí 2020 20:43
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Chelsea skoðar vinstri bakverði - Talað við Leicester
Mynd: Getty Images
Chelsea hefur verið orðað við Ben Chilwell, vinstri bakvörð Leicester og enska landsliðsins. Chelsea ætlar sér að krækja í Chilwell í sumar.

Samkvæmt heimildum Leicester Mercury hefur Chelsea haft samband við Leicester vegna landsliðsbakvarðarins. Tottenham og Manchester City hafa einnig áhuga.

Chelsea er þó ekki tilbúið að greiða þær 60 milljónir punda sem Leicester vill fá fyrir Chilwell. Chelsea vonast til að Leicester sé tilbúið í að lækka verðmiðann og þurfi fjármagn vegna heimsfaraldursins.

Bláliðar eru einnig sagðir skoða Fode Ballo-Toure, bakvörð Mónakó. Hann er talsvert ódýrari en Chilwell en þýsk félög eru að skoða hann.

Marcos Alonso, Emerson og Cesar Azpilicueta hafi leyst stöðu vinstri bakvarðar hjá Chelsea á leiktíðinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner