Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 08. maí 2020 22:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Pogba verður klár í fyrsta leik - Fyrsti leikur með Bruno
Mynd: Getty Images
Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, hefur staðfest að Paul Pogba, miðjumaður hjá félaginu, verði klár í fyrsta leik þegar boltinn fer að rúlla.

Stefna ensku úrvalsdeildarinnar er að fara af stað á nýjan leik í júní en deildin hefur verið í hléi í tvo mánuði vegna kórónaveirunnar.

Pogba fór í aðgerð í janúar og hefur því ekki leikið við hlið Bruno Fernandes sem kom til félagsins í janúar og hefur heillað margan stuðningsmannsins.

„Ég er algjörlega á þeirri skoðun (að Pogba verði klár)," sagði Solskjær við Sky Sports í dag.

„Paul hefur átt erfitt uppdráttar vegna meiðsla á leiktíðinni, hann hefur sjálfur sagt það. Marcus (Rashford) er einnig á leið til baka svo fyrir þá tvo er þetta nýtt upphaf þar sem þeir geta byrjað á pari við aðra og jafnvel þeim framar, ef og þegar við byrjum aftur að spila."
Athugasemdir
banner
banner