Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 08. maí 2020 18:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Robertson átt í basli með 2 leikmenn: Ég átti ekki roð í Adama
Mynd: Getty Images
Andy Robertson er oft í umræðunni þegar rætt er um bestu vinstri bakverði í heiminum. Robertson hefur leikið með Liverpool undanfarin ár.

Samkvæmt Skotanum eru það tvær leikmenn sem hafa náð að láta Robertson líta illa út í leik. Annar þeirra er Eden Hazard, leikmaður Real Madrid og belgíska landslisðins, og hinn er Adama Traore, leikmaður Wolves.

„Þegar ég spilaði gegn Chelsea með Hull þá mætti ég Hazard. Hann reif mig í tætlur og lét mig líta illa út," sagði Robertson við BBC 5 Radio.

„Það sama má segja um Traore á þessari leiktíð. Þegar hann er í gírnum er ekki hægt að stöðva hann. Þvílíkur leikmaður."

Wolves þurti að lúta í lægra haldi gegn Liverpool á Anfield en gestirnir voru ansi nálægt því að krækja í stig og var Liverpool svo gott sem í nauðvörn undir lok leiksins. Lokatölur urðu 2-1 fyrir heimamönnum.

Athugasemdir
banner
banner
banner