Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 08. maí 2021 05:55
Brynjar Ingi Erluson
England í dag - Upphitun fyrir úrslit Meistaradeildarinnar
Man City getur unnið Englandsmeistaratitilinn í dag
Man City getur unnið Englandsmeistaratitilinn í dag
Mynd: Getty Images
Manchester City getur fagnað Englandsmeistaratitlinum í dag er liðið spilar við Chelsea á Etihad-leikvanginum klukkan 16:30.

Leeds og Tottenham hefja daginn á leik klukkan 11:30. Leeds fór vel af stað á tímabilinu á meðan Tottenham byrjaði frekar illa undir stjórn Jose Mourinho.

Nú er Tottenham komið í gír og stefnir að Meistaradeildarsæti en liðið getur með sigri blandað sér í þá barátu. Klukkan 14:00 mætast Sheffield United og Crystal Palace. Sheffield er fallið en Palace getur tryggt sæti sitt í deildinni í dag.

Manchester City og Chelsea eigast þá við klukkan 16:30. Þessi lið tryggðu sér þátttökurétt í úrslitaleik Meistaradeildarinnar á dögunum og mætast þau síðar í mánuðnum en þau byrja þó á því að hita upp í í úrvalsdeildinni í dag. City getur unnið deildina með sigri á meðan Chelsea þarf stigin til að eiga möguleika á að spila í Meistaradeildinni á næstu leiktíð.

Möguleiki Liverpool á að komast í Meistaradeildina er til staðar ef allt fellur með þeim. Liðið þarf þó að vinna Southampton í dag sem hefur ekki unnið í síðustu þremur deildarleikjum.

Leikir dagsins:
11:30 Leeds - Tottenham
14:00 Sheffield Utd - Crystal Palace
16:30 Man City - Chelsea
19:15 Liverpool - Southampton
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Man City 33 22 8 3 76 32 +44 74
3 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Brighton 33 11 12 10 52 50 +2 45
11 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner
banner