Fotbolti.net
08.05.21 - 14:54
Aksentije Milisic

Ítalía: Napoli með mikilvægan sigur í Evrópubaráttunni

Ítalía: Napoli með mikilvægan sigur í Evrópubaráttunni
Canon

Mynd: Getty Images

Fyrstu tveir leikirnir í Serie A deildinni á Ítalíu eru búnir. Spezia og Napoli áttust við og hinn leikurinn var viðureign Udinese og Bologna.
Napoli átti ekki í neinum vandræðum með Spezia á útivelli. Staðan var 0-3 í hálfleik og loktölur urðu 1-4. Victor Osimhen gerði tvennu fyrir gestina frá Napoli.

Napoli er nú í öðru sæti deildarinnar sem stendur en liðin í kring eiga einn leik inni. Spezia er í 16. sæti deildarinnar og getur ennþá fallið.

Þá mættust Udinese og Bologna en bæði lið eru um miðja deild og því var lítið undir í þessum leik. Andri Fannar Baldursson var allan tímann á bekknum hjá Bologna í dag.

Spezia 1 - 3 Napoli
0-1 Piotr Zielinski ('15 )
0-2 Victor Osimhen ('23 )
0-3 Victor Osimhen ('44 )
1-3 Roberto Piccoli ('64 )
1-4 Hirving Lozano ('79)

Udinese 1 - 1 Bologna
1-0 Rodrigo De Paul ('23 )
1-1 Riccardo Orsolini - Víti ('82)

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio12+1932
2Roma12+2530
3Inter12+1529
4Milan12+1427
5Como12+1026
6Juventus12+721
7Frosinone12+520
8Napoli12+518
9Bologna12+218
10Genoa12-316
11Cagliari12-716
12Atalanta12-315
13Torino12-314
14Monza12-510
15Lecce12-1310
16Fiorentina12-119
17Parma12-128
18Sassuolo12-158
19Udinese12-136
20Venezia12-176
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.