Ísland vann góðan 1-0 sigur á Albaníu í fyrsta heimaleik Íslands í undankeppni EM 2020. Arnór Sigurðsson sagði að markmiðið í dag hefði verið að sækja 3 stig og það tókst.
Lestu um leikinn: Ísland 1 - 0 Albanía
„Við fórum inn í þennan leik með það markmið að sækja sigur hvort sem það væri fallegt eða ljótt og við förum út úr honum með 3 stig."
Arnór var að spila sinn fyrsta leik á Laugardalsvelli fyrir landsliðið og sagði að tilfinningin væri geggjuð.
„Það var mikið af svæðum á köntunum, ég átti að taka boltann og snúa sem eru mínir kostir svo það hentaði vel. Það er draumur að rætast að spila hérna, það er ekki langt síðan maður var áhorfandi en klárlega geggjuð tilfinning."
Athugasemdir