Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   lau 08. júní 2019 16:10
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Aron Einar: Þetta er okkar leikur
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þeir fengu ekki færi, ekkert sem ég man eftir, ég man að Hannes varði eitt skot í byrjun leiks. Mér fannst við vera með mikil tök á leiknum," sagði Aron Einar Gunnarsson, landsliðsfyrirliði, eftir 1-0 sigur á Albaníu í undankeppni EM í dag.

Lestu um leikinn: Ísland 1 -  0 Albanía

„Þetta er okkar leikur. Við fórum aftur í grunnatriðin. Það var það sem skóp þennan sigur. Það sem skipti máli í dag var að ná í þrjú stig."

„Það var pressa á okkur í dag, frá okkur sjálfum, frá ykkur og frá öllum á landinu að ná í úrslit. Búnir og ekki búnir, við erum í þessu til að vinna og við ætlum okkur á EM. Svo einfalt er það."

Ísland er með sex stig eftir þrjá leiki. Framundan er leikur við Tyrkland á heimavelli.

„Frakkar eru sterkasta liðið í þessum riðli og við erum búnir með útileikinn gegn þeim. Við erum komnir með sex stig. Við vissum að þetta yrði erfiður leikur og það verður annar pressuleikur á þriðjudaginn gegn Tyrkjum. Við höfum haft góð tök á þeim og verðum að halda því áfram."

Aron vonast til þess að Laugardalsvöllur verði þéttsetinn á þriðjudaginn.

„Árangur skapar áhorf og fólk vonandi mætir á þriðjudaginn og styður við bakið á okkur. Við þurfum á því að halda."

Viðtalið er hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner