Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 08. júní 2019 20:00
Ívan Guðjón Baldursson
Hazard fær sjöuna hjá Real Madrid
Þessir félagar sameinast á ný.
Þessir félagar sameinast á ný.
Mynd: Getty Images
Eden Hazard var keyptur til Real Madrid í vikunni og mun hann ekki nota sama treyjunúmer og hann gerði hjá Chelsea.

Hazard tekur sjöuna af Mariano Diaz, sem tók við henni þegar Cristiano Ronaldo yfirgaf félagið í fyrra.

Real Madrid treyja Hazard er þegar komin í Real Madrid búðir á Spáni og ber stórstjarnan treyjunúmerið 7. Treyjan kostar 148 evrur, sem samsvarar tæplega 21 þúsund krónum.

Hazard var númer 10 hjá Chelsea er einnig númer 10 hjá belgíska landsliðinu. N'Golo Kante er númer 7 hjá Chelsea og Kevin De Bruyne hjá belgíska landsliðinu.

Kaupverðið á Hazard eru 88 milljónir punda en árangurstengdar bónusgreiðslur geta næstum tvöfaldað þá upphæð. Hann er búinn að skrifa undir fimm ára samning.
Athugasemdir
banner
banner
banner