Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 08. júní 2019 15:11
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
HM kvenna: Nítján ára hetja Þýskalands gegn Kína
Mynd: Getty Images
Þýskaland 1 - 0 Kína
1-0 Giulia Gwinn ('66 )

Annar leikur Heimsmeistaramóts kvenna er búinn. Þýskaland og Kína áttust við í Rennes.

Þjóðverjar voru sterkari aðilinn í leiknum en það var aðeins eitt mark sem skildi liðin að. Það gerði Giulia Gwinn fyrir Þýskaland í seinni hálfleiknum, nánar tiltekið á 66. mínútu.

Gwinn er aðeins 19 ára gömul og leikmaður Freiburg í heimalandinu. Hún er þriðji táningurinn sem skorar fyrir Þýskaland á Heimsmeistaramóti og sú fyrsta sem gerir það í 20 ár. Gleðiefni fyrir hana.

Þýskaland er auðvitað eitt sigurstranglegasta liðið á mótinu. Ásamt Þýskalandi og Kína eru Spánn og Suður-Afríka í þessum riðli. Þau lið mætast klukkan 16:00.

Sjá einnig:
HM kvenna: Frakkar burstuðu Suður-Kóreu



Athugasemdir
banner
banner
banner